Heimildin fjallar um ungt fólk á Grensásdeild

Í nýjasta tölublaði Heimildarinnar eru viðtöl við ungt fólk sem hefur orðið fyrir alvarlegum taugaskaða. Líf þeirra gerbreyttist fyrirvaralaust og þau hafa tekist á við  ótrúlegar áskoranir af miklu hugrekki og þrautseigju.  Öll hafa þau verið á Grensásdeild og bera deildinni og starfsfólki hennar fallega söguna. Einnig eru viðtöl við nokkra starfsmenn deildarinnar. Hollvinir Grensáss þakka Heimildinni fyrir að vekja athygli á einstöku starfi Grensásdeildar og erfiðu hlutskipti þeirra sem þurfa á aðstoð hennar að halda.  Við þökkum líka landsmönnum fyrir áratuga velvild og stuðning, sem svo sannarlega ber árangur, því bráðum verður nýbyggingin afhent svo að hægt verður að búa hana húsgögnum og tækjum. Þá mun starfsaðstaða bæði sjúklinga og starfsfólks stórbatna.