Aðalfundur Hollvina Grensáss & Sesselja Þórðardóttir heiðursfélagi

Aðalfundur Hollvina Grensásdeildar var haldinn 15.apríl síðastliðinn.

Eftir yfirferð skýrslu stjórnar og ársreikninga var kosið í stjórn og eru
eftirfarandi aðilar í stjórn Hollvina Grensásdeildar 2026 -2027/2028:

Guðrún Pétursdóttir formaður, Svava Magnúsdóttir ritari, Sif Kristinsdóttir gjaldkeri,
Ósk Sigurðardóttir og Sigríður Guðmundsdóttir meðstjórnendur og
Þórarinn Guðjónsson og Bryndís Björk Kristjánsdóttir varamenn.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var Sesselja Þórðardóttir
kennari og sérlegur bakhjarl Grensásdeildar veitt nafnbótin Heiðursfélagi
Hollvina Grensásdeildar.
Við þökkum henni fyrir ómetanlegar gjafir og stuðning við deildina.