Þriðjudaginn 17.febrúar komu þær Aldís, Andrea, Elísabet og Nanna Kristín sem standa að verkefninu Konur Eru Konum Bestar færandi hendi með ágóða af klúta sölunni sem hófst á Kvennafrídaginn 24.október og stóð salan yfir í 3 vikur.
Stjórn Hollvina Grensáss þakkar kærlega fyrir veittan stuðning sem var 3.500.000 kr.