Símasöfnun er í gangi

Hollvinir Grensáss eru nú að safna nýjum styrkaraðilum sem kallast Vinir Grensáss. Styrkur þeirra er fólgin í mánaðarlegum framlögum að eigin vali. Söfnunin hófst í byrjun mars og hafa undirtektir verið mjög góðar.

Ýmis liknarfélög hafa farið þessa leið â undanförnum árum.

Við biðjum ykkur að taka vel á móti okkar fólki ef hringt verður til ykkar.