Konur Eru Konum Bestar afhendir stjórn Hollvina ágóða af klúta sölunni.

Þriðjudaginn 17.febrúar komu þær Aldís, Andrea, Elísabet og Nanna Kristín sem standa að verkefninu Konur Eru Konum Bestar færandi hendi með ágóða af klúta sölunni sem hófst á Kvennafrídaginn 24.október og stóð salan yfir í 3 vikur.

Stjórn Hollvina Grensáss þakkar kærlega fyrir veittan stuðning sem var 3.500.000 kr.