Sniglarnir grilla fyrir Grensás
Umm 200 hjól og enn fleiri Sniglar mættu í Grillið við Grensás og áttu góða stund með sjúklingum og starfsfólki. Meira en 400 pylsur hurfu ofan í mannskapinn. Þarna mættu líka vaskir hlauparar sem voru að æfa fyrir Reykjavíkurhlaupið. Það er gaman að vera með Sniglum í liði!