Frá stjórn HG

 
  
Gunnar Finnsson
 
Verið velkomin á heimasíðu Hollvina Grensásdeildar (HG) og þakka ykkur fyrir áhugann sem þið sýnið með því að líta inn. Hér má finna ýmsan fróðleik um starf og mikilvægi Grensásdeildar fyrir þjóðfélag okkar.
Fara í myndasafn

VISSIR ÞÚ...

    Lög Hollvina Grensásdeildar
     
     
    Nafn
     
    Nafn samtakanna er Hollvinir Grensásdeildar. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík.
     
    Tilgangur
     
    Tilgangur samtakanna er að styðja við, efla og styrkja endurhæfingarstarfsemi þá, sem fram fer á Grensásdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss eða í tengslum við þá starfsemi. Skal það gert með öflun fjár til þeirrar starfsemi og eins með því að vekja athygli á og hvetja til styrktar starfseminnar á opinberum vettvangi.
     
    Aðild
     
    Meðlimir samtakanna eru þeir einstaklingar, sem greiða árgjald þeirra. Jafnframt geta fyrirtæki eða félagasamtök gerst aðilar með greiðslu árgjalds. Árgjald skal greiða á fyrstu þremur mánuðum hvers árs. Sé árgjald ekki greitt á tilsettum tíma telst viðkomandi hafa sagt sig úr samtökunum. Greiðslu árgjalds fylgir sjálfkrafa skráning í samtökin.
     
    Stjórnun
     
    Æðsta vald í málefnum samtakanna er í höndum aðalfundar, sem haldinn skal fyrir maílok ár hvert. Boða skal til hans með auglýsingu, tölvupósti og/eða skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Fundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
     
    Á aðalfundi skal tekin fyrir skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið ár, endurskoðaðir reikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar, stjórn og skoðunarmenn reikninga kosin, árgjald ákveðið, starfsáætlun komandi árs samþykkt, tillögur að lagabreytingum teknar fyrir og önnur mál. Tillögur að breytingum á lögum samtakanna skal senda skriflega til formanns samtakanna ekki seinna en sex vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar í fundarboði. Til breytinga á lögum samtakanna þarf 3/5 greiddra atkvæða á aðalfundi.
     
    Stjórn samtakanna, sem hefur æðsta vald milli aðalfunda, skipa fimm aðalmenn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi, og tveir til vara. Stjórnin skiptir með sér verkum. Varamenn sitja stjórnarfundi. Þá skulu skoðunarmenn reikninga vera tveir.
     
    Fjármál
     
    Tekjustofn samtakanna eru árgjöld sem og aðrar tekjur, sem þau kunna að afla eftir því sem aðstæður leyfa.
     
    Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
     
    Slit samtakanna
     
    Til að leggja samtökin niður þarf samþykki tveggja aðalfunda í röð og þarf það að vera samþykkt með a.m.k. 4/5 greiddra atkvæða á hvorum fundi. Seinni aðalfundinn skal halda eftir að sex mánuðir eru liðnir frá þeim fyrri. Geta skal sérstaklega áforms um slit samtakanna í fundarboði.
     
    Verði samtökin lögð niður skal eignum þess ráðstafað til styrktar starfsemi Grensásdeildar í samráði við stjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss. Því ákvæði má aldrei breyta.
     
    Reykjavík, 5. apríl 2006